Sjö nýsköpunarteymi á Norðurlandi klára Startup Storm!

Glæsilegur hópur frumkvöðla sem tóku þátt í Startup Stormi 2024, en gaman er að segja frá því að öll teymin í ár voru leidd af konum.

Sjö nýsköpunarteymi á Norðurlandi kláruðu viðskiptahraðalinn Startup Storm sem Norðanátt stóð að.

Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Þetta er í fjórða sinn sem Norðanátt stendur fyrir viðskiptahraðli en í ár hófst Startup Stormur þann 3. október. Þátttakendur hafa síðastliðnar sjö vikur fengið fræðslu, setið vinnustofur og myndað tengingar við reynslumikla aðila úr atvinnulífinu á svokölluðum mentorafundum.

Lokaviðburður var haldinn með pompi og prakt fimmtudaginn 14. nóvember síðastliðinn í Hofi á Akureyri. Nýsköpunarteymin stigu á stokk og kynntu verkefni sín fyrir gestum. Á lokaviðburðinum var einnig fjölbreytt dagskrá, Vilhjálmur Bragason var kynnir kvöldsins og skemmti gestum, Albertína og Katrín framkvæmdastjórar SSNE og SSNV fræddu okkur um Sóknaráætlun og áherslu á nýsköpun og frumkvöðla.

 

Sjö teymi kynntu verkefnin sín sem spanna fjölbreytt svið nýsköpunar:

Akur Organic – Nýtt framleiðslufyrirtæki í lífrænni ræktun í Langanesbyggð, sem stefnir að því að bjóða upp á hágæða lífrænar afurðir.

Syðra Holt – Fjölmenningarlegt lífrænt býli sem starfar á sviði landbúnaðar, búfjárræktar, matvælaframleiðslu og lista, með það að markmiði að opna kaffihús til að þróa verkefnið enn frekar.

Hret Víngerð – Þróar létt og freyðandi ávaxtavín úr rabarbörum af Norðurlandi vestra, sem ætlað er að selja heima- og ferðamönnum um land allt.

Skynró – Hannar fatnað fyrir einstaklinga með skynúrvinnsluvanda, þar sem flíkurnar sinna ólíkum skynþörfum með aukahlutum sem eru skynörvandi, veita ró og öryggi án þess að vera áberandi.

Kayakar – Kajakleiga þar sem viðskiptavinir fara á eigin vegum, auk þess að bjóða upp á hjólaleigu með skipulögðum ferðum og matarupplifun. Fyrirtækið er í stöðugri vöruþróun í afþreyingarferðamennsku.

Listakot Dóru – Býður upp á sögugöngu í myrkri undir heitinu myrkurgæði, þar sem upplifunin felst í að vera í algjöru myrkri og skynja landslagið í skugga.

Semey – Listamannadvöl á Ólafsfirði sem stefnir að því að útbúa aðstöðu og umgjörð fyrir listamenn til að iðka list og efla skapandi greinar í Fjallabyggð.

 

Þessi fjölbreytta flóra verkefna sýnir fram á þann kraft og sköpunargáfu sem býr í frumkvöðlum á Norðurlandi. Startup Stormur hraðallinn hefur veitt þessum teymum dýrmætt tækifæri til að þróa hugmyndir sínar og koma þeim á framfæri, og er ljóst að framtíðin er björt fyrir nýsköpun á svæðinu.

Við óskum teymunum til hamingju með kraftmiklar kynningar á verkefnum sínum og hlökkum til að fylgjast með þeim vaxa og dafna áfram!

Next
Next

Lokaviðburður Startup Storms