Verkefnastjóri Norðanáttar í föstudagsþættinum
Kolfinna María Níelsdóttir, verkefnastjóri Norðanáttar, var gestur í Föstudagsþættinum á N4 þann 2. september sl. Þar ræddi hún verkefnin framundan hjá Norðanátt, sér í lagi viðskiptahraðalinn Vaxtarrými sem hefst nú í haust. Hægt er að horfa á innslag hér að neðan.
Rafrænn kynningarfundur Vaxtarrýmis fer fram mánudaginn 12. september nk. frá kl. 11:30 - 12:00 þar sem farið verður yfir öll helstu atriði Vaxtarrýmis ásamt því að fólki gefst kostur á að spyrja spurninga.
Hlekkur á Facebook viðburð: https://fb.me/e/5cpHGthmX
Hlekkur á zoom: https://us02web.zoom.us/j/83553405875
Vaxtarrými hefst 3. október og lýkur 24. Nóvember.
Umsóknarfrestur er til og með 19. september nk.